148. löggjafarþing — 63. fundur,  29. maí 2018.

Afbrigði um dagskrármál.

[15:00]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég verð að taka undir orð hv. þm. Þorsteins Sæmundssonar og lýsa yfir miklum áhyggjum af því að við hér á Alþingi eigum að fjalla um þennan doðrant sem barst þingheimi í gær. Þetta eru 147 bls. sem hafa gríðarlega víðfeðm áhrif á stofnanir, fyrirtæki og allan almenning á Íslandi. Við erum að tala um stjórnvaldssektir sem nema 2,4 milljörðum sem Persónuvernd á að taka ákvörðun um. Prófessor í lögum hefur sagt að það þurfi að minnsta kosti að fjórfalda starfsmannahaldið hjá Persónuvernd til þess að stofnunin geti haft það eftirlit sem hún á að hafa með höndum. Ég held að við verðum að gera betur. Við getum ekki verið að vinna þetta með þessum hætti.