148. löggjafarþing — 63. fundur,  29. maí 2018.

Afbrigði um dagskrármál.

[15:01]
Horfa

Smári McCarthy (P) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Upprunalega var byrjað að tala um GDPR í Evrópu 25. janúar 2012. Það var tekið upp í Evrópurétti 8. apríl 2016 með ákvörðun ráðsins og 14. apríl 2016 með ákvörðun þingsins. Við höfum vitað af þessu máli í átta ár. Þetta er ekki neitt sem ætti að koma okkur á óvart. Það hefur verið í vinnslu hjá ríkisstjórninni og í ráðuneytum í að verða tvö ár og í raun er bara engin góð skýring á því af hverju þetta birtist núna. Frumvarpið hefði átt að koma á réttum tíma. Við hefðum átt að fá að sjá það fyrr. Við fengum það afhent, 147 bls., í gærkvöldi. Okkur er gert að afgreiða þetta bara núna. Svona vinnubrögð eru ekki líðandi. Ríkisstjórnin á að hegða sér betur og koma með gögn til þingsins á þannig tíma að það sé mögulegt fyrir okkur að vinna málin vel, vandlega, faglega og eðlilega undir öllum kringumstæðum. Svona á ekki að gera hlutina. Þetta er skammarlegt og sýnir algera fyrirlitningu á þinginu. Ég bara skil ekki svona vinnubrögð.