Afbrigði um dagskrármál.
Frú forseti. Ég ætla bara að taka undir orð þeirra þingmanna sem komið hafa fram og gert alvarlegar athugasemdir við þetta vinnulag. Þetta er algerlega óboðlegt. Ekki eingöngu það að koma fram með slíkt risamál hér með fyrirvara sem nánast er enginn, þ.e. sá tími sem okkur er gefinn. Heldur ekki síður það að engar skynsamlegar ástæður liggja að baki, að minnsta kosti ekki sem varpað hefur verið upp. Í ljósi þess að þær skortir verður ekki hjá því komist að menn álykti sem svo að hér sé verið að reyna að koma í veg fyrir að þingið ræði þetta mál. Þá er bara að segja við stjórnarliða: Það mun ekki verða svo, þetta mál verður rætt eins og þingmenn telja þörf á.