Afbrigði um dagskrármál.
Frú forseti. Hæstv. ráðherra getur ekki verið alvara að ætla þinginu viku til að ljúka jafn umfangsmiklu og viðamiklu máli og hér er um að ræða. Það er með ólíkindum að eftir að ítrekað var kallað eftir að þetta mál kæmi fram tímanlega séum við að horfa á að verið sé að mæla fyrir því rétt rúmri viku áður en þing á að fara heim. Það er enginn tími til umsagna. Það er ljóst af þeirri vinnu sem þegar hefur verið lögð í málið að lítið tillit hefur verið tekið til þeirra athugasemda sem gerðar voru við málið á vinnslustigi þess. Þetta hefur gríðarlega víðfeðm áhrif, t.d. fyrir allt atvinnulífið í landinu, sem er að undirgangast mjög miklar kröfur að viðlögðum gríðarlega háum sektum. Við eigum að taka viku í að ljúka umræðu um þetta mál. Þið hljótið að vera að grínast.