Afbrigði um dagskrármál.
Frú forseti. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir, hér er ekki um óvænt mál að ræða. Það breytir því hins vegar ekki að við þurfum að fjalla um þetta, fá umsagnir um málið á þeim nokkru dögum sem eftir eru af þinginu. Ég geri ráð fyrir að umsagnaraðilum verði veittir tíu dagar eða svo. Hvað eru þá margir dagar eftir miðað við starfsáætlunina? Þetta er algerlega óboðlegt; fyrir utan það að hér erum við að fara að ræða á næstu dögum fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar ofan í þetta. Þetta er sleifarlag, það er margbúið að kalla eftir þessu máli, margbúið að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra hvort málið fari ekki að koma inn á þingið. Þingið og stjórnarandstaðan geta einfaldlega ekkert sætt sig við að eiga að breytast í afgreiðslustofnun þar sem hlutirnir rúlla í gegn fyrir ríkisstjórnina þegar margbúið er að vekja athygli á þessu. Þetta er ömurlegt, herra forseti — frú forseti, meira að segja.