148. löggjafarþing — 63. fundur,  29. maí 2018.

Afbrigði um dagskrármál.

[15:24]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Fyrir fram hefði ég búist við því að ráðherra í ríkisstjórn sem til er stofnað m.a. um eflingu Alþingis og kemur fram með mál á síðustu stundu til afgreiðslu kæmi fram af nokkurri auðmýkt við þingmenn. En að koma hér og saka þá sem finna að þessum vinnubrögðum um gífuryrði er fyrir neðan allar hellur, hæstv. ráðherra. Mig langar bara til þess að fara með eina tilvitnun í góða bók sem við eigum öll að hafa í heiðri, með leyfi hæstv. forseta. Það stendur í henni: „Auðmýkt er undanfari virðingar.“

Ég sé ekki að þessi ráðherra verði aðnjótandi virðingar um einhverja hríð.