Afbrigði um dagskrármál.
Frú forseti. Hvernig stendur á því að þetta frumvarp kemur svona seint inn í þingið? Ef það var svona mikið tilbúið, af hverju kom það ekki fyrr inn í þingið? Af hverju kemur svona stórt mál inn í þingið þegar örfáir dagar eru eftir og fyrir liggur að við verðum að afgreiða annað stórt mál sem er fjármálaáætlun til næstu fimm ára? Hvernig stendur á þessu? Þeir sem vilja geta skoðað umræður hér fram eftir þessu þingi. Við þingmenn kölluðum eftir stórum málum í tíma vegna þess að við vildum ekki lenda í þessu sem við erum að lenda í nákvæmlega núna. Eins og hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir benti á þá er margbúið að kalla eftir þessu frumvarpi vegna þess að þingmenn vissu að þetta var stórt mál, það þyrfti að fara yfir það vandlega og það þyrfti að gefa sér tíma til þess. Hvernig stendur á þessum vinnubrögðum, frú forseti? Hvað gengur þessari ríkisstjórn til?