Afbrigði um dagskrármál.
Hæstv. forseti. Ég kem hér upp eins og fleiri þingmenn til þess að ræða þetta mál. Ég mun ekki greiða atkvæði gegn málinu. En þegar talað er um breytt vinnubrögð og virðingu Alþingis og þar fram eftir götunum dettur mér í hug það sem kallað var korter fyrir þrjú á böllunum í gamla daga. (Gripið fram í: Það voru bestu sénsarnir.) [Hlátur í þingsal.] Það voru ekki alltaf bestu sénsarnir. Ég verð að viðurkenna að ég tók þátt í því líka. (Gripið fram í.) Þá voru menn oft úrillir, ósofnir og oft illa drukknir, ekki búnir að tannbursta sig eða greiða hárið, og biðu eftir því að fá þann kjark sem til þurfti til þess að bjóða einhverri dömu upp í dans og gerðu það ekki fyrr en korter fyrir þrjú. Það minnir mig svolítið á það sem við erum að verða vitni að nú í dag. Þar af leiðandi finnst mér það ekki vera til vegsemdar og virðingar fyrir þingið.