Afbrigði um dagskrármál.
Við sjáum mikilvægi þess að laga persónuverndarlöggjöfina í ljósi þess að dómstólar eru ítrekað — og upp kom mál í síðustu viku um það — að birta persónuupplýsingar í dómum sínum. Persónuvernd hefur úrskurðað að um brot sé að ræða. Umboðsmaður barna átti fund með Dómstólasýslunni, sem er stjórnsýslueftirlitsbatterí innan dómskerfisins, á dögunum þar sem það var gagnrýnt að persónuupplýsingar um börn væru birtar í dómum.
Þetta eru grafalvarleg mál. Það eru einhver mikilvægustu málin í lýðræðissamfélagi að vernda friðhelgi einkalífs fólks. Þess vegna getum við ekki gert þetta glannalega. Þess vegna er svo slæmt hve seint málið er fram komið. Það er aftur á móti til lausn í þessu. Við byrjum, eins og við ætlum að gera núna, á að ræða þetta mál og vinna það, þeir sem eru í nefndinni, þeir sem eru að sinna þessu á þessu þingi. Þessu þingi er frestað, svo að landsmenn viti það, en því er ekki slitið nú í vor. (Forseti hringir.) Það er alveg hægt að koma aftur saman síðar. Þingið getur komið saman og klárað þetta í sumar, þannig að nefndinni gefst tækifæri til að vinna þetta í sumar; (Forseti hringir.) því lengri tími gefst fyrir umsagnarferlið.
En forseti Alþingis virðist vilja (Forseti hringir.) þrýsta þessu áfram í tíu daga umsagnarferli. Nei, við þurfum að taka góðan tíma í þetta. Nefndin getur (Forseti hringir.) unnið þetta eftir 1. umr., þó þingi sé frestað, og tekið málið fyrir síðar í mánuðinum eða í júlí. Það er hægt ef við ætlum að gera þetta vel. Annars hefur þessi ríkisstjórn sætt sig við að gera þetta glannalega. (Forseti hringir.) Það getur haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir persónuvernd á Íslandi.