148. löggjafarþing — 63. fundur,  29. maí 2018.

persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga.

622. mál
[16:17]
Horfa

dómsmálaráðherra (Sigríður Á. Andersen) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Varðandi vinnsluskrárnar og þann möguleika að undanþiggja einkaaðila með sama hætti og opinbera aðila þá er það alveg ljóst að reglugerðin heimilar ekki slíkt. Orðalagið er alveg skýrt að því leyti. Fyrir þessu kunna auðvitað að vera þau rök af hálfu Evrópusambandsins og þeirra sem sömdu þessa reglugerð að upplýsingar sem opinberir aðilar hafa í sínum fórum geta alla jafna verið miklum mun persónulegri og viðkvæmari heldur en fyrirtæki hafa í sínum rekstri. Ég er þó sammála hv. þingmanni um að það er ekkert endilega þannig. Það geta auðvitað verið fyrirtæki sem höndla með mjög viðkvæmar persónuupplýsingar. Ég hvet bara hv. allsherjar- og menntamálanefnd til þess að skoða sérstaklega hvort menn treysti sér til þess að koma með eitthvert svipað ákvæði inn í frumvarpið. Ekki er ég að minnsta kosti mótfallin því, en menn þurfa að gera sér grein fyrir því að reglugerðin sníður okkur mjög þröngan stakk í þessu. En ég tel það alveg einnar messu virði að skoða það hvort mætti koma einhverju svona ákvæði inn í frumvarpið.