148. löggjafarþing — 63. fundur,  29. maí 2018.

persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga.

622. mál
[16:30]
Horfa

dómsmálaráðherra (Sigríður Á. Andersen) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég nefndi þetta með starfsmenn ráðuneytanna í því ljósi að það féllu þau orð hérna að ráðherrann ætti að huga að breyttum vinnubrögðum í ráðuneytinu. Ég taldi að þar með væri vegið að ráðuneytinu, ekki bara ráðherranum sjálfum. Það liggur hins vegar alveg fyrir að sú sem hér stendur samdi ekki þetta frumvarp. Sú sem hér stendur samdi heldur ekki greinargerðina með henni og hefur ekki átt aðild að samningaviðræðum við Evrópusambandið né framkvæmdastjórnina og öll hin EFTA-ríkin um framgang þessa mál gagnvart sameiginlegu EES-nefndinni á vettvangi Evrópusambandsins. Það eru margir sem hafa komið að þessu máli og, leyfi ég mér að fullyrða, hafa unnið að því sleitulaust í tvö ár, reyndar lengur frá því að drög að þessari reglugerð voru kynnt í Evrópusambandinu áður en reglugerðin var samþykkt 2016.

Þetta vildi ég sagt hafa. Ég held að hv. þingmenn geti alveg átt málefnalegar umræður hér og rökrætt við ráðherrann um efni þessarar reglugerðar, reglugerðina sjálfa og frumvarpið sjálft, og ættu bara að einhenda sér í það hið fyrsta.

Svigrúmsákvæði persónuverndarfrumvarpsins eru nokkur, þ.e. reglugerðin heimilar útfærslu á nokkrum atriðum. Ég hef nefnt það. Það eru atriði er varða persónuvernd látinna einstaklinga. Það er kveðið sérstaklega á um að hægt sé að útfæra það sérstaklega. Ríkin hafa gert það með ýmsum hætti. Í Svíþjóð hafa menn fallist á fimm ára frest og í Danmörku tíu ára frest. Allt þetta mun nefndin fjalla um.

Það er líka skilyrði sem gilda um samþykki barns í tengslum við þjónustu í upplýsingasamfélaginu. Þar er svigrúm fyrir öll ríkin að útfæra aldursmörkin. Það er svigrúm fyrir (Forseti hringir.) ríkin að útfæra reglur um stjórnvaldssektir og útfæra reglur um refsingar, svo ég nefni hér dæmi. Einnig um gjaldtöku.