persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga.
Herra forseti. Það hefði verið gott og kannski spurning hvort hægt sé að koma ráðherranum að á mælendaskrá aftur eftir andsvör svo að ráðherra geti kynnt þingheimi almennilega þetta frumvarp sem hún er að leggja fram, þ.e. kynna almennilega hvaða breytingar hafa verið gerðar á reglugerðinni og hvernig okkar leið er að því að innleiða þessa reglugerð. Ég held að það sé algjört lágmark eigi þingið að vinna þetta frumvarp.
Nú kom það fram í máli hæstv. dómsmálaráðherra að hún samdi ekki þetta frumvarp. Þá veit ég ekki hvort hún sé með því að segja að hún þekki ekki frumvarpið nægilega til þess að geta upplýst þingmenn um hvað stendur í því. Ef svo er þá er auðvitað borin virðing fyrir því. Þá er dómsmálaráðherra vinsamlegast beðin um að fara með frumvarpið aftur og kynna sér efni þess til þess að þingheimur geti fengið að vita hvað í því stendur.
Það eru ýmsar athugasemdir sem líka verður að gera. Það hefur ítrekað komið fram í máli hæstv. dómsmálaráðherra að Evrópusambandið sé einhvern veginn að draga lappirnar í þessu máli. Nú skal það tekið fram að þessi reglugerð var samin í apríl 2016, þá hefðu íslensk stjórnvöld átt að hefjast handa. Hins vegar var nefnd ekki skipuð fyrr en í nóvember á síðasta ári. Þá hafði hæstv. dómsmálaráðherra verið ráðherra málaflokksins í nærri því eitt ár og er enn. Maður veltir fyrir sér hvort það hefði kannski farið betur á því að reyna að skipa þessa nefnd fyrr.
EFTA sendir hins vegar Evrópusambandinu ákvörðunina núna í mars og eru þrír til fimm mánuðir (Forseti hringir.) eftir það sem Evrópusambandið hefur til þess að svara. Það er ekki þannig að Evrópusambandið sé búið að vera að draga það misserum (Forseti hringir.) saman að svara varðandi EES-samninginn. Hreint ekki.