148. löggjafarþing — 63. fundur,  29. maí 2018.

persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga.

622. mál
[17:16]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Það er mjög áhugavert að lesa það sem fram kemur í nýframlagðri fjármálaáætlun hvað þetta allt varðar. Þar er einmitt líka, varðandi markmið, mælikvarða og aðgerðir er varða persónuvernd, talað um, þegar kemur að réttindum einstaklinga, að markmiðið sé að réttindi einstaklinga séu gerð skýr og aðgengileg með greinargóðri upplýsingagjöf stjórnvalda. Nú erum við með 147 bls. frumvarp í höndunum sem hæstv. dómsmálaráðherra vill að taki gildi áður en langt um líður og áður en þingheimur fer í sumarfrí — ef hann fer í sumarfrí, það væri kannski gott að fá upplýsingar um það. Þar kemur fram að viðmiðið 2019, sem er á næsta ári, eftir að nýju persónuverndarlöggjöfin tekur gildi, sé að sett verði saman fræðsla fyrir börn í samvinnu við SAFT og þá sem vinna með börnum um réttindi þeirra og unnið verði að aukningu sjálfsafgreiðslu í gegnum vefsíðu. Viðmið sett 2018.

Það er ekkert um fræðslu um þá byltingu sem hér er að eiga sér stað. Það er bara talað um að fræða eigi börn um þeirra persónuvernd. Það er vissulega gott. Nú er til dæmis verið að breyta reglugerðinni þannig að börn þurfi við 13 ára aldur að samþykkja ákveðna hluti, samkvæmt frumvarpinu sem hér hefur verið lagt fram, þegar þau fara inn á ýmsa samfélagsmiðla og þess háttar. Hver ætlar að kynna það fyrir blessuðum börnunum?