persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga.
Herra forseti. Loksins, loksins, loksins, tekur hæstv. dómsmálaráðherra á sig rögg og leggur fram frumvarp til laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Loksins, segi ég. Samkvæmt starfsáætlun Alþingis lýkur þingið störfum sínum þann 7. júní. Það hefur legið fyrir frá því starfsáætlunin var lögð fram í upphafi þings. Það kemur varla á óvart. Um árabil hefur legið fyrir að ný persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins myndi taka gildi síðastliðinn föstudag og yrði innleidd í EES-samninginn. Það kemur varla á óvart. Það hefur legið fyrir lengi að Alþingi þyrfti að afgreiða ný lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga til þess að uppfylla skyldur sínar samkvæmt EES-samningnum og tryggja þar með að íslenskir borgarar og fyrirtæki njóti sömu réttinda og réttarverndar og önnur EES-ríki og verði ekki fyrir skakkaföllum eða að réttaróvissa skapist. Það kemur varla á óvart.
Herra forseti. Ekkert í þessu máli var ófyrirséð eða ætti að koma hæstv. dómsmálaráðherra eða ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur á óvart.
Það sem kemur hins vegar á óvart eru þau vinnubrögð sem viðhöfð eru í þessu máli. En nei annars, herra forseti, vinnubrögðin koma því miður ekkert á óvart. Hæstv. dómsmálaráðherra virðast ansi oft mislagðar hendur og ríkisstjórnin hefur greinilega lagt til hliðar fyrirheit um bætt vinnubrögð, eflingu Alþingis, samráð um stór mál og aukið traust til Alþingis. Vinnubrögðin í þessu máli staðfesta því miður annað tveggja. Annaðhvort meinar ríkisstjórnin ekkert með því sem hún segir eða hitt — sem er trúlegri skýring — að ríkisstjórnin ræður einfaldlega ekki við að efna fyrirheit sín.
Herra forseti. Málið sem við fjöllum um er margþætt. Það er flókið. Það varðar mikilvæg réttindi. Það leggur miklar og nýjar skyldur á þá sem sýsla með persónuupplýsingar og réttindi þeirra sem fjallað er um. Það er hluti af EES-samningnum. Það varðar mikilvæg stjórnskipuleg atriði. Þrátt fyrir allt þetta dettur ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur í hug að dreifa málinu til alþingismanna í gær, taka það til 1. umr. í dag og ætlast til þess að málið verði klárað fyrir þinglok. Er ríkisstjórninni virkilega alvara? Já, því miður, henni virðist vera alvara með þessum vinnubrögðum.
Þann 8. maí sl. beindi ég munnlegri fyrirspurn til hæstv. dómsmálaráðherra um hvað framlagningu þessa máls liði. Þar spurði ég meðal annars, með leyfi forseta:
„Af hverju í ósköpunum er þetta frumvarp ekki komið fyrir þingið til umræðu?“
Í svari hæstv. ráðherra sagði meðal annars, með leyfi forseta:
„Hitt er annað mál að frumvarpið liggur nú nýlega fullklárað fyrir hjá dómsmálaráðuneytinu, hefur verið í kostnaðarmati hjá fjármálaráðuneytinu og í yfirlestri hjá forsætisráðuneytinu. Ég hyggst leggja það fyrir Alþingi á næstu dögum.“
Herra forseti. Strax er teygjanlegt hugtak, eins og frægt er orðið. Á næstu dögum er greinilega álíka óljóst. Næstu dagar hæstv. ráðherra reyndust tuttugu. Það eru ansi margir dagar í ljósi þess að fyrir lá á þeim tíma að þingið lyki störfum eftir þrjátíu daga. Aftur hlýtur maður að velta fyrir sér af hverju svona er að verki staðið. Í hreinskilni sagt: Ég skil það ekki.
Herra forseti. Í kjölfar þessarar umræðu benti hæstv. dómsmálaráðherra þingflokksformönnum á með tölvupósti að frumvarpið væri að finna á svokallaðri samráðsgátt Stjórnarráðsins. Um þessa ágætu samráðsgátt segir, með leyfi forseta, á þeirri síðu:
„Markmið samráðsgáttarinnar er að auka gagnsæi og möguleika almennings og hagsmunaaðila á þátttöku í stefnumótun, reglusetningu og ákvarðanatöku opinberra aðila. Hér er á einum stað hægt að finna öll mál ráðuneyta sem birt hafa verið til samráðs við almenning.“
Það er nefnilega það. Alþingi er bent á samráðsgáttina til að afla sér upplýsinga um þetta stóra mál. Er það dæmi um aukið samráð, bætt vinnubrögð og virðingu fyrir störfum Alþingis? Eiga alþingismenn bara að treysta á samráðsgáttina til þess að komast að því hvað höfðingjarnir hafast að?
Þá vekur það sérstaka athygli að frumvarpsdrög til umsagnar voru birt á samráðsgáttinni í byrjun mars. Hins vegar var öll greinargerðin ekki birt á þeim tíma. Þar vantaði til dæmis greiningu á stjórnskipulegum álitaefnum. Þar var ekki að finna athugasemdir um einstaka greinar sem er auðvitað mikilvægt til þess að skilja ákvæðin til fulls og þýðingu þeirra.
Eftir því sem best verður séð hefur frumvarpið ekki tekið neinum breytingum frá því það birtist í samráðsgáttinni. Vitað er að margvísleg álitaefni eru um efni reglugerðarinnar og hvernig hún skuli útfærð. Hér hlýtur að koma til vandlegrar yfirferðar Alþingis um öll þessi atriði.
Herra forseti. Þann 25. maí, sama dag og persónuverndarreglugerð ESB tók gildi, birtist fréttatilkynning á vef dómsmálaráðuneytisins undir fyrirsögninni Ný persónuverndarlöggjöf. Þar segir, með leyfi forseta:
„Til að flýta afgreiðslu málsins eins og frekast er unnt mun utanríkisráðherra leita fyrirframsamþykkis Alþingis til innleiðingar GDPR-reglugerðarinnar í EES-samninginn í næstu viku. Þá var framlagning frumvarps dómsmálaráðherra um innleiðingu reglugerðarinnar í íslenskan rétt samþykkt á fundi ríkisstjórnar í morgun og verður frumvarp til nýrra persónuverndarlaga lagt fram á Alþingi í næstu viku.“
Og áfram:
„Áform stjórnvalda eru því að upptaka reglugerðarinnar í EES-samninginn og setningu nýrra laga um persónuvernd verði lokið áður en Alþingi fer í sumarhlé.“
Áfram segir, með leyfi forseta:
„Ísland hefur þar til í dag verið með sömu réttarvernd og ríki ESB á sviði persónuverndar og talist hluti hins innri markaðar. Stjórnvöld EFTA-ríkjanna hafa komið sjónarmiðum sínum skýrt á framfæri við Evrópusambandið um að þar til GDPR-reglugerðin taki gildi í EES-samningnum muni núgildandi persónuverndartilskipun halda gildi sínu í samskiptum EFTA-ríkjanna við ríki innan ESB.
Millibilsástandið sem myndast milli gildistöku GDPR- reglugerðarinnar í ESB og upptöku hennar í EES-samninginn ætti því ekki að valda truflunum á notkun persónuupplýsinga á innri markaði EES.“
Herra forseti. Þessi síðari tilvitnun, um að EFTA-ríkin hafi komið sjónarmiðum sínum á framfæri við Evrópusambandið, vekur sérstaka athygli. Af hverju vekur hún sérstaka athygli? Jú, það er nefnilega vegna þess að hún er ekki lengur eins og fréttatilkynningin var orðuð 25. maí þegar hún var birt. Henni var breytt 28. maí. Það er í engu getið um hverju var breytt eða hvers vegna. Menn eiga bara að finna það á sér hverju var breytt. Var um smávægilegar lagfæringar að ræða? Eða var verið að breyta henni í veigamiklum atriðum?
Herra forseti. Fréttatilkynningunni var einmitt breytt í veigamiklum atriðum. Áður sagði í henni að stjórnvöld EFTA-ríkjanna hefðu birt yfirlýsingu um stöðuna þar til GDPR-reglugerðin taki gildi. Í nýrri útgáfunni hafa þau komið sjónarmiðum sínum á framfæri. Þetta er ekki allt. Í fyrri útgáfunni var líka talað um að Evrópusambandið, lagaskrifstofa Evrópusambandsins, myndi gefa út sams konar yfirlýsingu. Þetta er algjörlega horfið úr fréttatilkynningunni. Þetta skiptir gríðarlega miklu máli upp á réttarstöðu manna. Þarna hafa tvær yfirlýsingar horfið sporlaust úr fréttatilkynningunni.
Vissi ráðuneytið ekki hvað það var að segja í upphaflegu tilkynningunni? Var hér um að ræða vankunnáttu á málefninu og því hvernig hlutirnir ganga fyrir sig? Eða bjó kannski eitthvað annað undir? Átti að reyna að róa þá sem töldu að réttaróvissa væri að skapast með því að dikta upp að búið væri að gefa út yfirlýsingar á báða bóga?
Dómsmálaráðuneytið og dómsmálaráðherra og við öll verðum að gera okkur grein fyrir því að þrátt fyrir allt er fylgst með íslenskri stjórnsýslu og það er fylgst með því hvað kemur frá dómsmálaráðuneytinu í þessum efnum. Menn hafa verið að bíða eftir því hvernig þessi mál eru leyst. Það fór reyndar þannig að það voru aðilar hér á landi og reyndar í útlöndum líka sem lásu margumrædda fyrstu fréttatilkynningu ráðuneytisins og hófu þegar að leita að umræddum yfirlýsingum en fundu þeim hvergi nokkurs staðar stað.
Þetta er grafalvarlegt mál og er eiginlega með hreinum ólíkindum að ráðuneyti, virðulegt ráðuneyti dómsmála, hagi sér með þessum hætti.
Herra forseti. Hér er allt á sömu bókina lært; ónóg vandvirkni og flumbrugangur. Það er auðvitað sorglegt að þurfa að draga fram þessa raunasögu alla. En ábyrgðina ber auðvitað hæstv. dómsmálaráðherra ásamt ríkisstjórninni í heild sinni.