persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga.
Virðulegi forseti. Við fjöllum hér um persónuverndarlög, við fengum 147 blaðsíður til þess að lesa fyrir minna en sólarhring síðan. Það er eiginlega vonlaust að átta sig á því nákvæmlega hvaða breytingar eru í þessum nýju lögum sem ekki voru í gömlu lögunum. Það sem veldur mér töluverðum áhyggjum er að í gömlu persónuverndarlögunum — ég held að orðið hafi mistök hjá löggjafanum í sambandi við almannatryggingalög — er heimilt að fara lengra út fyrir valdsvið í öflun persónuupplýsinga en ég hef nokkurn tímann séð gagnvart einstaklingum. Það er gagnvart einstaklingum sem eru undir verndarvæng Tryggingastofnunar ríkisins, sem eiga að vera skjólstæðingar Tryggingastofnunar ríkisins. Það eru ekki bara einstaklingarnir sem þar eru inni og eru á bótum hjá Tryggingastofnun, heldur makar þeirra líka.
Búin eru til persónuverndarlög sem horfa fram hjá svona hlutum þar sem ekki er bara brotið gróflega gegn persónuvernd skjólstæðinga Tryggingastofnunar, heldur er líka brotið gegn mökum þeirra. Ef makarnir gefa ekki leyfi til ítarlegra persónuupplýsinga er hægt að loka á bætur til skjólstæðinganna.
Í lögum um almannatryggingar segir, með leyfi forseta:
„Þegar um hjón er að ræða er Tryggingastofnun heimilt, að fengnu skriflegu samþykki beggja, að afla upplýsinga um tekjur maka og greiðslur til hans hjá framangreindum aðilum ef þær gætu haft áhrif á fjárhæð bóta. Sama gildir um tekjur sambúðarfólks sem uppfyllir skilyrði fyrir samsköttun samkvæmt 3. mgr. 62. gr. laga um tekjuskatt. Telji umsækjandi, greiðsluþegi eða maki upplýsingar frá þessum aðilum ekki réttar skal hann leggja fram gögn því til staðfestingar.“
Síðan segir einnig:
„Skortur á upplýsingum. Ef ekki reynist unnt að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra vegna skorts á nauðsynlegum upplýsingum sem rekja má til umsækjanda, greiðsluþega eða maka hans er Tryggingastofnun heimilt að fresta ákvörðun og greiðslu bóta þar til úr því er bætt. Tryggingastofnun skal tafarlaust gera viðkomandi viðvart ef til frestunar kemur, skora á hann að veita nauðsynlegar upplýsingar og gera honum grein fyrir afleiðingum þess ef áskorun um að veita upplýsingar er ekki sinnt.“
Síðan kemur inn í þetta upplýsingaskylda annarra aðila.
Þar er talið upp gagnvart þessum einstaklingum, með leyfi forseta:
„Skattyfirvöld, Vinnumálastofnun, Þjóðskrá Íslands, Innheimtustofnun sveitarfélaga, Fangelsismálastofnun, Útlendingastofnun, ríkislögreglustjóri, Samgöngustofa, lífeyrissjóðir, sjúkrastofnanir, dvalar- og hjúkrunarheimili, sveitarfélög, Lánasjóður íslenskra námsmanna, viðurkenndar menntastofnanir innan hins almenna menntakerfis og skólar á háskólastigi skulu láta Tryggingastofnun í té upplýsingar með rafrænum hætti eða á annan hátt að því marki sem slíkar upplýsingar eru nauðsynlegar til að unnt sé að framfylgja lögum þessum.“
Það er allt undir. Ég segi: Hvar er persónuverndin? Þá skulu Tryggingastofnun og Sjúkratryggingastofnun á sama hátt skiptast á upplýsingum um mat.
Annað er líka stórfurðulegt í sambandi við þessi mál Tryggingastofnunar ríkisins og Persónuverndar gagnvart því, þ.e. réttarstaða sambýlisfólks. Einstaklingar sem eru í óvígðri sambúð samkvæmt 7. lið 2. gr. almannatryggingarlaga, njóta sömu réttinda og bera sömu skyldur og hjón samkvæmt lögum. Um fjármagnstekjur sambýlisfólks fer samkvæmt 16. gr. og sameiginlegu lögheimili eða sambúð eftir öðrum og ótvíræðum gögnum lengur en eitt ár skal lagt að jöfnu við skráningu sambúðar í þjóðskrá.
Það er undarlegt að Tryggingastofnun var á sínum tíma kærð til Persónuverndar fyrir svokallaðan bótasvikahnapp. Persónuvernd sagði að þessi bótasvikahnappur væri ólöglegur, Tryggingastofnun mætti ekki setja upp samsvarandi hnapp nema með leyfi Persónuverndar. En Tryggingastofnun setti upp hnappinn nú nýlega. Í sambandi við hnappinn sem var áður kemur fram að árið 2015 voru upplýsingar sendar til Tryggingastofnunar í gegnum svokallaðan ábendingahnapp sem sett var á heimasíðu stofnunar í því skyni að hver sem var gat í skjóli nafnleyndar látið Tryggingastofnun í té upplýsingar og nafngreint fólk. Í framhaldi fór fram rannsókn á högum þess, hvort það hefði látið réttar upplýsingar í té um stöðu sína.
Persónuvernd úrskurðaði árið 2015 að þessar upplýsingar væru brot á lögum um persónuvernd. TR fjarlægði hnappinn í framhaldinu, en nú er hann kominn upp aftur.
Eins og fram kom var óvíst um heildarfjölda ábendinga sem bárust á þessum tíma, en talað var um að 521 skjólstæðingur hefði verið tekinn til rannsóknar. Í þriðjungi tilfella, í 172 málum eða eitthvað álíka, var eitthvað á bak við en ekkert var sannað á tvo þriðju hluta þeirra í rannsókninni, 349 skjólstæðingar alls. Tryggingastofnun bætir við að það þýði ekki að ábendingin hafi ekki átt við rök að styðjast.
En hverjir voru þessir einstaklingar sem verið var að reyna að ná með þessum blessaða hnappi? Jú, verið var að reyna að finna hjón sem voru að skilja að borði og sæng til þess að standa betur fjárhagslega, bjarga sér.
Við hljótum að spyrja okkur að því hvers vegna í ósköpunum Persónuvernd lét þetta viðgangast. Mál um ábendingahnapp á vef Tryggingastofnunar ríkisins, nr. 2017/1003, var tekið fyrir á stjórnarfundi Persónuverndar 8. mars 2018. Var þar kveðinn upp svohljóðandi úrskurður, með leyfi forseta:
„Sú vinnsla persónuupplýsinga, sem fram fer fyrir tilstilli ábendingahnapps á vefsíðu Tryggingastofnunar ríkisins, samrýmist lögum nr. 77/2000, um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.“
Á þessum tíma var Persónuvernd með þessi nýju lög í vinnslu. Einhverra hluta vegna virðist hún horfa fram hjá því.
Það er athyglisvert að skoða úrskurð Persónuverndar. Með leyfi forseta ætla ég að vitna beint í úrskurðinn þar sem eftirfarandi kemur fram:
„[L]ögmaður hjá Öryrkjabandalagi Íslands, svaraði með bréfi, dags. 1. desember 2017, fyrir hönd kvartanda. Kemur þar meðal annars fram að TR hafi mátt vera ljóst að óheimilt væri að setja upp ábendingahnapp á ný án þess að slíkt yrði fyrst borið undir Persónuvernd, enda hafi þegar legið fyrir úrskurðir frá Persónuvernd um lögmæti slíkra hnappa TR. Einnig er mótmælt rökum TR um að sú vinnsla persónuupplýsinga, sem felst í ábendingahnappinum, sé nauðsynleg til að fullnægja lagaskyldu stofnunarinnar. Þá segir að ekki hafi heldur verið færð fyrir því rök að vinnslan geti talist þjóna almannahagsmunum.“
Við skulum átta okkur á því vegna hverra verið er að setja upp hnapp til þess að upplýsa um að þeir séu svikarar. Við erum að tala um veikt fólk. Við erum að tala um barnafólk. Við erum að tala um eldri borgara þessa lands. Við erum að tala um að þetta fólk sé þannig að það þurfi að setja upp svikahnapp vegna þess. Ég segi: Ef þetta er löglegt og má, þá verðum við að fara að setja upp svona hnappa hjá skattstofunni, stjórnsýslunni, og hér á Alþingi, nafnlausa hnappa, eða svo til nafnlausa. Það á að vísu að gefa upp nafn.
Eftir því sem ég fæ best séð þarf að setja inn nafn sendanda og netfang. Hvaða nafn gæti maður sett þarna inn? Jú, Gróa á Leiti. Hvaðan sendir hún? Það getur verið úr hvaða netfangi sem er í sjálfu sér. Maður þarf bara að komast í einhverja tölvu sem annar aðili er jafnvel með. Það er hægt að komast í tölvur út um allt. Þá getur maður sent ábendingar til Tryggingastofnunar ríkisins um að einhver sé að svíkja bætur eða eitthvað og skrifað undir: Gróa á Leiti. Það gildir samkvæmt því sem Persónuvernd segir.
Mig langar að benda á annað í sambandi við ný persónuverndarlög. Það er skrýtið að gömlu lögin — ég lenti í því sjálfur, þegar gömlu lögin voru í gildi, að sjúkraskrá minni var stolið. Ég segi bara: stolið. Ég vann málið í Persónuvernd. Ég vann málið í héraðsdómi. En Hæstiréttur segir: Þetta er í lagi í þetta sinn. Þarna er ég að tala um lækni. Hann fer úr Orkuhúsinu beint inn á bæklunardeild Landspítalans þar sem ég fór í aðgerð. Hann fór inn í gögnin á sínum kóða. Hann segir þegar honum er bent á þetta — af því að ég sé í niðurstöðu tryggingafélagsins að það hafi verið vegna aðgerðarlýsingar og eins og annars sem ég hafði aldrei séð og vissi ekki um. Ég benti á það en hann sagði að hann hefði aldrei farið inn í sjúkraskrána. Sjúkrahúsið segir: Nei, hann fór aldrei inn. En þegar IP-talan komst upp var sagt: Jú, hann kíkti inn. Persónuvernd segir: Hann fór inn. En spítalinn segir: Við berum enga ábyrgð á þessu. Þetta er alfarið mál læknisins. Málið er borðleggjandi. Undirskrift mín var hvergi.
En hugsið ykkur. Til þess að ég fengi þessar upplýsingar sem hann gat náð í einn, tveir og þrír, þurfti ég að mæta upp á Landspítala. Ég þurfti að leggja fram skilríki, koma með skriflega beiðni um að fá þessi gögn. Ég þurfti að bíða í viku. Síðan þurfti ég að koma aftur, sýna aftur persónuskilríki, kvitta fyrir gögnunum. Það var mín aðferð til þess að ná þessum gögnum. En viðkomandi gat náð þeim bara af því að hann komst inn í tölvukerfið, hafði aðgang að því.
Það undarlegasta í þessu samhengi er það voru rangar upplýsingar í þessum gögnum sem hann sagði að væru þarna. Það var bara rangt. Hvernig í ósköpunum eigum við að treysta persónuverndarupplýsingum eða persónuverndarlögum ef ekki er einu sinni hægt að verja sjúkraskrá þar sem eigandi þessarar sjúkraskrár hefur hvergi gefið skriflegt samþykki sitt og sá sem náði í gögnin hafði hvergi beðið um það? Við hljótum að gera þá lágmarkskröfu að einhver sjái til þess, þ.e. löggjafinn, við, að svona hlutir eigi sér ekki stað.
Það er annað í þessum nýju persónuverndarlögum sem mér finnst alveg stórfurðulegt, að það eigi að búa til persónuverndarfulltrúa og vottunaraðila. Ég segi fyrir mitt leyti að þegar ég var að reyna að lesa í gegnum — það virðist engin regla gilda um þetta, það veit enginn hver á að borga þetta. Það má gera þetta, það má gera hitt. Hversu margir eru það? Hvað kostar þetta? Hvernig á að gera þetta? Hvaða krafa er gerð til menntunar þessara votta? Hvað eiga þeir að votta? Hvernig í ósköpunum eigum við að skrifa upp á þetta? Þetta er eins og ég myndi gefa opinn víxil fyrir einhverju sem ég veit ekki hvað á að nota í.
Þessi persónuverndarlög þurfa mun meiri umræðu en við eigum að fá til þess eða því sem er reiknað með að eigi að fara í þetta. Ég myndi segja að best væri að fresta gildistöku þessara laga, taka þau gjörsamlega undir smásjá og tryggja að fólk sem er á lífeyrislaunum, fólk sem er á vegum Tryggingastofnunar, fólk sem er á sjúkraskrá, er að berjast við tryggingafélög, að það sé lágmarkskrafa að þessir einstaklingar geti varið sig og að persónugreinanleg gögn í sjúkraskrám verði ekki notuð gegn þeim til þess að hafa af þeim lögbundnar bætur.