148. löggjafarþing — 64. fundur,  29. maí 2018.

persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga.

622. mál
[19:06]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessar spurningar. Ég hef miklar áhyggjur af þessum svikahnappi hjá Tryggingastofnun ríkisins sem ég tel stangast á við persónuverndarlög; það á að ganga þannig frá þeim lögum að þetta sé ekki hægt. Eins og ég segi, annaðhvort er þetta hægt hjá öllum eða engum. Mér finnst það alltaf mjög skrýtið þegar þeir sem eru verst settir og geta síst varið sig eru settir undir þennan hatt, en allir aðrir, tökum sem dæmi skattsvik og annað, eru ekki settir undir sama hatt og ekki horft á þá sömu augum, ekki grunaðir um svik. Af því að við erum að tala um veikt og slasað fólk.

Það er ofsalega sárt að lenda í því — ég tala af reynslu — að lesa lýsingar í sjúkraskrám um sig og vita ekki einu sinni af þeim. Vita ekki hvort það er rétt, sem þú lest, eða hvort það er rangt. Þá þarf að fara af stað til þess að gá að því, svo kemstu að því að þetta er rangt; þú sannar að þetta er rangt og gerir allt rétt. En einhvern veginn enda hlutirnir á því að Hæstiréttur segir að það sé rétt sem var kolrangt.

Í hvaða tilgangi, ef við förum að hugsa, var þetta gert? Jú, þetta var gert í einum tilgangi, þarna var brotið gróflega á mér, hvað varðar persónuvernd og friðhelgi einkalífs, með því að fara í sjúkraskrár, til að hafa af mér lögbundnar slysabætur, vegna tjóns í tryggðum bíl — tvítryggðum meira að segja, bæði ökumannstrygging og almenn trygging — af því að það var tilgangurinn. Þetta skelfir mig. Ég sé ekki í þessu frumvarpi að búið sé að breyta þessu eða gera neitt til þess að bæta úr því.