persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga.
Frú forseti. Já, ég er það. Auðvitað reynir maður að lesa sig í gegnum frumvarpið og átta sig á hinum góða ásetningi og hvernig hann getur þjónað okkur í nútímasamfélagi. En ég átta mig ekkert endilega á samspilinu. Ég býst bara við að hv. þingmaður, sem er stærðfræðingur, (Gripið fram í.) ja, a.m.k. tölvunarfræðingur (Gripið fram í.) en glöggur á munstur, ætti að vera mér fremri í því að átta sig á því. Ég sé það ekki. Þess vegna spurði ég í upphafi ræðunnar hvort ekki hefði verið einfaldara að við tækjum bara innleiðingarreglugerðina. Síðan gætum við rætt hitt en það kunna að vera einhverjir meinbugir á því.
Nei, ég hef ekki yfirsýn yfir málið algjörlega, hvernig samspil þessara hluta er, og það er líka grafalvarlegt. Annað er að setja sig inn í þessi tvö mál, frumvarpið og þingsályktunartillöguna, og hitt að átta sig á öllu samspilinu og það á einni viku. Það finnst mér hættulegt og ömurlegt í jafn mikilvægu máli og þetta er.