persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga.
Frú forseti. Það sem gerir þetta líka svo flókið er þessi brjálæðislega breytti heimur sem við lifum í. Persónuverndarreglugerðin og löggjöfin eru tilraun til að sníða líf okkar að þeim veruleika og vernda okkur. Einhver greindur maður sagði einhvern tímann að siðvitið væri alltaf tveimur, þremur skrefum á eftir tækninni. Ég held að það sé alveg hægt að fallast á að það sé sannleikskorn í því þegar maður horfir á söguna, hvað þá þegar við lifum á tækniöld þar sem breytingar vaxa með veldishraða. Ég er alveg klár á því að siðvitið gerir það ekki. Við slíkar aðstæður held ég að það sé enn mikilvægara að hvert einasta skref sem við tökum og hver einasta tilraun sem við eigum til að bregðast við þessum nýja veruleika og þeim ógnum sem steðja að okkur sem einstaklingum sé yfirvegað og að við fáum ráðrúm til að skilja það og að almenningur skilji það á endanum. Það getur hins vegar vel verið að kerfið okkar virki þannig að farið sé að gera ráð fyrir því almennt að við séum stimpilstofnun og eigum ekkert að láta okkur þetta varða vegna þess að fólk uppi í ráðuneytum sé búið að lúslesa þetta og fara yfir það, að okkar meðferð á málum sé sýndarmennska, en þá erum við líka í alvarlegri kreppu. Ég held að við eigum að gefa okkur þann tíma sem við þurfum til að skilja þetta mál og afgreiða það vegna þess að ég hef enga ástæðu til að ætla að það sé einhver ljótur ásetningur á bak við það. Við þurfum hins vegar að skilja það, sérstaklega frávikin frá reglugerðinni. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)