persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga.
Frú forseti. Ég tek undir allflesta punkta sem hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson kom með. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann geri sér grein fyrir því sem hann minntist á með aðildarríkin, hversu mikið svigrúm þau hafa. Þetta er mjög áhugavert og í raun lykilatriði sem hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson talar um vegna þess að það er einmitt hlutverk okkar sem hér störfum að vita hvar þetta svigrúm er, hvar það liggur. Því hlýtur aðkoma okkar að því að teljast mjög mikilvæg og þurfa að gefa tíma í það.
Varðandi sektargreiðslurnar sem hv. þingmaður minntist á er það mjög stórt og mikilvægt mál. Þarna eru gríðarlega háar fjárhæðir sem geta snert fyrirtæki á þann hátt að skera úr um hvort hægt sé að reka fyrirtækið áfram eða ekki.
Ég spyr hv. þingmann hvort hann viti hvort íslensk fyrirtæki eru undirbúin eða ekki. Við í þinginu fengum þetta frumvarp í skóinn í nótt og því vil ég vita hvort íslensk fyrirtæki hafi haft einhverja vitneskju um það á undan okkur.