148. löggjafarþing — 64. fundur,  29. maí 2018.

persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga.

622. mál
[19:58]
Horfa

Sara Elísa Þórðardóttir (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni fyrir gott svar. Ég tek undir þetta með sektargreiðslurnar og hversu mikið svigrúm er þar. Þetta skiptir höfuðmáli á Íslandi af því við erum smærri þjóð en aðrar þar sem verið er að taka upp þessar reglugerðir. Því skiptir höfuðmáli hverjar sektirnar eru fyrir lítil fyrirtæki, eins og flest fyrirtæki á þessu landi eru.