148. löggjafarþing — 64. fundur,  29. maí 2018.

persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga.

622. mál
[19:59]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessi orð. Það eru ekki aðeins fyrirtækin sem maður hefur áhyggjur því að þessar upphæðir geta, ef menn fara ýtrustu leiðir í því öllu saman, reynst mörgum sveitarfélögum mjög erfiðar. Ljóst er að ef eitthvað sem er metið alvarlegt gerist í minni sveitarfélögum, hvort sem það gerist fyrir slysni eða hvernig það er, og ákveðið er að sekta viðkomandi sveitarfélag um 1,5 milljarða eða eitthvað slíkt er hægt að loka sjoppunni. Þá getur vel verið að það sveitarfélag teikni bara upp einhverja galna mynd og hægt sé að loka því. Það er mikilvæg að skýra hvernig á að beita slíkum sektum. Mér finnst það ekki koma nógu vel fram í frumvarpinu.