148. löggjafarþing — 64. fundur,  29. maí 2018.

persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga.

622. mál
[20:04]
Horfa

Smári McCarthy (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég get að mörgu leyti tekið undir þetta. Það er alltaf hættan þegar refsiramminn er stór að hann verði síðan nýttur. Ef mig misminnir ekki er í persónuverndarreglugerðinni sjálfri einmitt talað um veltutengingu upp á — hvort það var 1% af heildarveltu yfir árið, ég man það ekki alveg. En hvort það endurspeglast síðan í frumvarpinu er ágætisspurning. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður hafi náð að lesa frumvarpið á þeim örstutta tíma sem við höfum fengið til þess. Ég hef ekki náð því sjálfur. Ég hef varla náð að renna yfir það í snöggheitum.

En ég óttast samt, og það væri áhugavert að heyra sjónarmið hv. þingmanns á því, að það hvað refsiramminn og sektaramminn eru stórir gæti orðið til þess að hugsanlegir þjónustuveitendur, fyrirtæki verði bara hreinlega hræddir við að bjóða upp á þjónustu, að það muni letja nýsköpunaratvinnu, letja útvíkkun á þjónustuformum, að þetta muni hreinlega draga úr möguleikum okkar á framþróun í framtíðinni.

Náttúrlega hinn möguleikinn sem ég held að hafi alltaf verið grundvallarskilningurinn í reglugerðinni er að það verði í stað þess farið að stunda það sem Martin Fowler kallaði „Datensparsamkeit“ á þýsku, með leyfi forseta, sem kalla mætti gagnanísku eða gagnasparsemi, sem snýst um að halda í algjöru lágmarki þeim gögnum sem safnað er um persónur í eðlilegri meðferð og þar með takmarka mjög verulega hættuna á því hvað umfangsmikill leki fyrir slysni, handvömm eða innbrot eða hvað, geti valdið miklum skaða. En ég held þessi ótti við að fara af stað og bjóða upp á þjónustu á annað borð gæti alveg orðið raunverulegur.