148. löggjafarþing — 64. fundur,  29. maí 2018.

persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga.

622. mál
[20:24]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég heyri það að þingmaðurinn gæti talað hér í nokkra daga um þessi mál. Það er mjög hollt held ég fyrir okkur sem erum í allsherjar- og menntamálanefnd og fáum málið til umfjöllunar að hlusta á hann og aðra sem hafa sett sig vel inn í persónuverndarreglugerðina. Ég hjó eftir því sem hann sagði um DNS-grunninn sem internetið allt eins og við notum það byggir á og við stólum dálítið á sem eitt af grunnkerfum samfélagsins sem við byggjum. Ég velti fyrir mér hvort við í allsherjar- og menntamálanefnd þurfum að skoða sérstaklega ISNIC, eins og þingmaðurinn nefndi, hvernig frumvarpið snertir þeirra rekstur, hvort þetta sé innleiðingaratriði eða hvort þetta sé stærra vandamál sem tengist reglugerðinni eins og hún kemur að utan.

Varðandi önnur grunnkerfi, sameiginleg grunnkerfi á netinu, þá dettur mér í hug island.is, hvort við þurfum að hafa einhverjar gætur á því eða taka tillit til einhverrar sérstöðu þar.