persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga.
Frú forseti. Þetta er ótrúlega flókið. Ég tók DNS- og WHOIS-kerfið sérstaklega fyrir vegna þess að þetta er svo stórt grunnkerfi sem við reiðum okkur mikið á, en eru þess eðlis að það er mjög auðvelt að gleyma tilvist þeirra. Það er ekki bara ISNIC og aðrir sem reka WHOIS-kerfið sem þetta frumvarp getur snert heldur líka bara t.d. símaskráin. Nú er þeim upplýsingum safnað mikið til sjálfvirkt þannig að hún fellur mjög skýrlega undir skilyrðið í 4. gr. Þetta er opinber gagnagrunnur sem sýnir persónuupplýsingar fólks, nafn, heimilisfang, símanúmer, starfstitil og annað og hefur hingað til verið ákveðið ætlað samþykki eða fólgið samþykki fyrir birtingu, en það er spurning hvort það sé nægilega skýrt og fólk átti sig á því þegar það setur upplýsingar í símaskrá hversu margir nákvæmlega muni hafa aðgang að þeim og í hvaða tilgangi.
Vandamálið er kannski ekki bara ákveðnir aðilar, heldur er það kerfislægt. Ég er ekki að segja að þetta sé óyfirstíganlegt. Þetta er náttúrlega svolítið eðli málsins að reyna að draga línuna á einhverjum skynsamlegum stað, en við verðum að passa upp á að frumvarpið valdi ekki tjóni á svona gagnagrunnum sem eru einmitt hugsaðir sem opinberir en gætu verið túlkaðir þannig að þeir hefðu að geyma of mikið af upplýsingum eða fólgnu leyfi.
Svo eru náttúrlega öll hin atriðið. Þetta er endalaust.