persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga.
Frú forseti. Það eru ákveðnar undanþágur gerðar í frumvarpinu hef ég séð sem taka á upplýsingum í fórum opinberra aðila sem gera gráa svæðið alla vega töluvert ljósara. En það eru kannski þessir einkaaðilar sem eru í meiri vandræðum, ég nefni dæmi eins og einmitt símaskrána, ISNIC og kannski fyrirtæki eins og Creditinfo sem eru með alveg gríðarlega stór gagnasöfn um lánstraust fólks, það mætti líka nefna bankana almennt sem hafa miklar upplýsingar undir höndum. Fólk undirgengst auðvitað skilmála hjá bönkum þegar það opnar reikninga og þannig. Það er ákveðinn skilningur á því að þessi gögn eigi að fara leynt og að það megi safna þeim. Mér er ekki kunnugt um að ég hafi persónulega nokkurn tímann gefið Creditinfo heimild til þess að safna upplýsingum um mig, hvorki fyrirtæki sem ég hef átt aðild að né lánstraust eða annað. Það er annað dæmi um að fólgið leyfi dugi ekki. Það verður að vera mun nákvæmara.
Ég held að það sé ekki vandamál til staðar gagnvart opinberu aðilunum og það gæti verið einhver sérstök heimild gagnvart þeim. Ég endurtek að ég hef ekki náð að lesa frumvarpið í gegn þannig að það er mjög líklegt að ég hafi misst af einhverju. En skilningurinn verður að vera þannig að það sé alveg skýrt hvaða kvaðir eru gerðar og til hvers er ætlast af fyrirtækjum sem eru með alla þessa gagnagrunna, alveg frá vídeóleigum upp í rekstraraðila, sjúkraskrá hjá einkalæknastofum og álíka. Hvað eiga þau að gera til þess að uppfylla skilyrðin? Mér er það ekki ljóst í dag.