148. löggjafarþing — 64. fundur,  29. maí 2018.

persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga.

622. mál
[20:31]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Smára McCarthy fyrir mjög góða ræðu. Hún hefði mátt vera miklu lengri, kannski ekki tveir dagar eins og þingmaðurinn talaði um, en ef ég hefði fengið mat og kaffi og smá hvíld hefði ég alveg verið til í að hlusta á hann.

Ég er mjög blankur í þessum málum. Ég hef aðeins verið að fletta í gegnum þetta 147 blaðsíðna frumvarp og er eiginlega ekki búinn að átta mig á nema einhverju broti af því. Ég hjó eftir því að þingmaðurinn talaði um að hafa fylgst með þessu af miklum áhuga síðan 2012 og ég sá að fyrstu lögin um persónuvernd tóku gildi 1981. Þá var ég sá sem hér stendur í Iðnskólanum í Reykjavík að læra rafvirkjun og þar fengum við aðeins innsýn inn í hvernig tölvubúnaður er uppbyggður frá grunni í gegnum tvíundakerfi og eitthvað svoleiðis og ég hafði mikinn áhuga á því. Síðan eru liðin mörg ár og internetið varð að veruleika, ég man ekki hvenær. Þetta snýst náttúrlega mikið um internetþjónustu og það sem skeður í gegnum tölvur.

Ég hjó eftir því að þingmaðurinn talaði um að fyrirtæki yrðu að svara neitandi ef þau væru spurð út í persónuvernd. Er það af því að ekki er búið að koma þessu á koppinn? Eins í sambandi við kærur til Facebook og Google og annarra slíkra aðila, á hverju byggjast þær? Ég byrja á því að spyrja að þessu.