persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga.
Frú forseti. Mér finnst mjög umhugsunarvert að dómsmálaráðherra sjálf skuli líta svona léttvægt á það að heilum doðranti með frumvarpi til nýrra laga sé skellt svona léttúðlega inn í íslenskt lagaumhverfi án þess að gefinn sé góður tími og almennilegt næði fyrir þingið að skoða og mynda sér skoðun á doðrantinum umrædda. Og kannski sérstaklega í ljósi þess að þetta er einmitt hennar málaflokkur, hennar sérgrein, réttarkerfið sjálft, sem á að heita viðbragðsaðili lögbrota. Það er uggvænlegt að dómsmálaráðherra skuli ekki stíga varlegar til jarðar í þessum efnum. Þetta er atriði, GDPR, sem snertir öll svið samfélagsins eins og ítrekað hefur komið hér fram í ræðustól í dag. Þetta er í raun og veru alveg einstakt mál og ekkert annað en hrein og bein bylting í persónuvernd. Þetta ætti ekki að koma hæstv. dómsmálaráðherra neitt á óvart því að þetta hefur verið fyrirséð í lengri tíma. Persónuvernd hefur gefið það út að fjölga þyrfti starfsmönnum fjórfalt eins og kom fram í dag til þess að stofnunin geti sinnt því hlutverki sem henni verður falið eftir innleiðingu þessarar reglugerðar.
Þetta ætti ekki að koma hæstv. dómsmálaráðherra á óvart heldur vegna þess að sú sem hér stendur hlýddi einmitt fyrir ári á forstjóra Persónuverndar útskýra þessa staðreynd. Eins og ég skildi hana þá snerist sú röksemd að fjölga þyrfti mannskap innan stofnunarinnar að einhverju leyti um þann tímaramma sem hún fær til að bregðast við kvörtunum og kærum. Það snerist til dæmis um að ef stofnunin brygðist ekki við, að mig minnir innan 72 klukkustunda, félli málið niður. Þannig að eins og ég segi, það er ár síðan þetta kom hér skýrt fram innan veggja þingsins.
Sektirnar og þessar gígantískt háu upphæðir sem fræðilega um ræðir gætu, eins og þingmaður talaði um hér fyrr í kvöld, snert lítil sveitarfélög mjög illa og þungt, jafnvel það þungt að það gæti, fræðilega séð, sett sveitarfélög á hliðina fjárhagslega. Nýlegt dæmi kom upp innan sveitarfélaga hér á höfuðborgarsvæðinu, í Garðabæ og á Seltjarnarnesi, þar sem mjög viðkvæmar persónuupplýsingar voru aðgengilegar almenningi vegna mistaka hjá undirverktaka — það er ekki enn þá komið í ljós til dæmis hvort þessi sveitarfélög séu bótaskyld gagnvart þeim aðilum sem málið snerti. Ef við hugsum um þetta í raunheimum, ekki bara á prenti í þykkum bunka eða á netinu heldur bara hér á Íslandi í raunheimum, þá geta afleiðingar verið margar og ófyrirsjáanlegar og jafnvel mjög fyrirsjáanlegar líka sem geta verið mjög alvarlegar fyrir land og þjóð.
Mér finnst augljóst að fresta þurfi þinglokum til að gefa málinu það næði sem þingið þarf til að vinna úr svo gríðarstóru máli. Nú hefur orðið mikil vitundarvakning hér á landi sem og annars staðar í heiminum eftir að Cambridge Analytica málið kom upp og fólk er ekki tilbúið til að sætta sig við hvað sem er. Þess vegna er þetta mjög jákvætt. Þess vegna er svolítið leiðinlegt að þetta skuli koma fram undir þessum kringumstæðum, á einhverjum handahlaupum þegar hægt væri að líkja internetinu okkar við byggingu sem við búum öll í, undir sama þaki. Þessi reglugerð, GDPR, snýst um að þvo gluggana, að einhverju leytinu til. En við skulum ekki þvo gluggana okkar með óhreinu vatni. Ef þetta er gert á svona leifturhraða eins og virðist vera vilji ríkisstjórnarinnar, þá erum við bara að gera nákvæmlega það, við erum að þvo gluggana með óhreinu vatni.