samkomulag um lok þingstarfa.
Herra forseti. Ég verð að taka undir skilning kollega míns, hv. þm. Oddnýjar Harðardóttur, um að hvergi hafi verið nefnt að nákvæmlega þetta mál kæmi á dagskrá þingsins. Hins vegar kom fram í því sem hæstv. forseti sendi okkur að þingmannamál yrðu tekin á dagskrá. Einhvern veginn átti ég von á að þau þingmannamál sem væru tilbúin til afgreiðslu, sem á við um stafrænar smiðjur og þjóðarsátt um bætt kjör kvennastétta, tvö mál frá stjórnarandstöðunni, yrðu þá mögulega tekin á dagskrá líka. Í staðinn tökum við mál í bullandi ágreiningi til 1. umr. sem ekkert hefur verið rætt. Ég vil bara árétta að þetta hefur ekki verið rætt á vettvangi þingflokksformanna með hæstv. forseta, alls ekki, og það er rangt að halda því hér fram.