samkomulag um lok þingstarfa.
Virðulegi forseti. Við erum að tala um 3 milljarða kr. lækkun á útgerðina. Hvað gætum við gert við þetta fjármagn? Myndi SÁÁ vera að loka sumum hverjum meðferðarstofnunum sínum í sumar ef þar skorti ekki fjármagn? Ef við hugsuðum okkur 10% af því sem núna á að nýta í að lækka veiðigjöld til útgerða, hvort sem þær eru moldríkar eða ekki, skyldi þá staðan vera eins alvarleg hjá unga fólkinu okkar og þeim sem eru að deyja? Nú var ungur drengur að deyja fyrir nokkrum dögum síðan vegna ofneyslu á morfínlyfjum sem hann sprautaði í sig.
Ég hef ekki tölu á því hvað mörg ungmenni hafa dáið núna frá áramótum. En ef það væri vegna bílslysa, ef það væri vegna flugslysa, sjóslysa, væri alveg á hreinu að hér væri búið að bregðast við og það af hörku.
Í fjármálaáætlun til næstu fimm ára er gert ráð fyrir 3 milljarða kr. lækkun á veiðigjöldum, svo það sé sagt. (Forseti hringir.) Það eru 15 milljarðar á fimm árum. (Forseti hringir.) Ég býst við því að það séu einhverjir úti í samfélaginu sem þurfa frekar á því fé að halda (Forseti hringir.) en moldríkar útgerðir.