samkomulag um lok þingstarfa.
Virðulegi forseti. Skilji ég þetta rétt er framgangsmátinn sá að ríkisstjórnarmál eru fremst í röðinni af þeim málum sem tekin eru á dagskrá. Í öðru lagi koma mál sem almenn sátt ríkir um. Aftast í þessari röð eru þá þingmannamál sem ágreiningur er um. Ráðgátan er sennilega sú: Hvers vegna er verið að taka þetta mál núna fram fyrir röðina? Þá er í rauninni aðeins ein skýring á því. Hún er sú að þetta er ríkisstjórnarmál. Þetta er ríkisstjórnarmál í felulitum. Ríkisstjórnin skýlir sér á bak við meiri hluta í nefndinni og getur ekki staðið við sitt helsta (Forseti hringir.) hugsjóna- og hagsmunamál.