148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

samkomulag um lok þingstarfa.

[12:32]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Herra forseti. Mig langar að koma hérna aðeins upp til að ræða hvaða mál eru tæk til þess að vera hér á dagskrá.

Hæstv. forseti hefur komið inn á það hvers vegna mál hafi ekki verið tekin inn á dagskrá, þ.e. þessi mál sem ég hef minnst á hér og aðrir hv. þingmenn um stafrænar smiðjur, og að því skjali hafi ekki verið útbýtt fyrr en í gær. Ég vil aðeins fara yfir þau mál sem eru hérna. Við erum með nefndarálit með breytingartillögu frá velferðarnefnd og við erum með nefndarálit með breytingartillögu frá allsherjar- og menntamálanefnd. Bæði eru þetta þingmannafrumvörp. Eitt þeirra er á dagskrá í dag en hitt ekki.

Okkar mál, málið um stafræna smiðjur, var klárað 29. maí. Málið frá velferðarnefnd var klárað 30. maí. Samt sem áður er staðan eins og hún er í dag, það er einungis eitt mál, það er mál ríkisstjórnarflokks sem fær forgang fram yfir þingmannamál. Þess ber svo auðvitað að geta í lokin að það er þingmannamál sem er aftast á dagskrá. Því var útbýtt í gærkvöldi. (Forseti hringir.) Sömu reglur hljóta að gilda um það. Það er ekki tækt á dagskrá þessa þings. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)