148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

samkomulag um lok þingstarfa.

[12:38]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti hefur upplýsingar um að allmörg þingmannamál hafi fengið afgreiðslu út úr nefndum og að önnur séu þar á lokametrunum þannig að forseti bindur vonir við að sú staða skýrist á næstunni og mun fylgjast með því. En það er að sjálfsögðu ekki í höndum forseta að segja hv. þingnefndum fyrir verkum. Þær eru sjálfstæðar í störfum sínum eins og kunnugt er.