frumvarp um veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Það er dapurt að þurfa að taka þátt í þessum nöturlegu vinnubrögðum. Það er líka svolítið merkilegt ef við hugsum til þess að þetta er í boði Vinstri grænna, yfirlýsts velferðarflokks, sem kýs frekar að lækka skatta, álögur, á auðmagnið en sleppa því að bæta kjör þeirra verst stöddu í samfélaginu. Að á þeirra vakt skuli gjáin dýpka og bilið breikka á milli ríkra og fátækra vekur mér furðu. Þess vegna segi ég: Ég er döpur yfir þeirri stöðu sem við horfum upp á núna. Í stað þess að geta glaðst yfir því að hér sé yfirlýstur velferðarflokkur í forsæti horfum við algerlega á það andstæða.