frumvarp um veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Við stöndum einfaldlega frammi fyrir því að við völd situr ríkisstjórn sem þorir ekki að standa fyrir máli sínu hér í þingsal þegar að því kemur að keyra í gegnum þingið á lokametrunum sitt helsta forgangsmál, heldur dulbýr það sem nefndarmál og þegar það virkar ekki þá sem meirihlutamál og þannig á að keyra það í gegn fordæmalaust.
Maður spyr sig: Er þessi háttur hafður á af því að menn treysta því ekki að málið fari ólaskað út úr þingflokkunum þremur? Er einhver ljósglæta þar einhvers staðar hvað það varðar að draga úr tekjum íslensks almennings af þjóðarauðlegð sinni? Ég hafna því algjörlega að þetta snúist um það að við sem hér mótmælum þessum ólýðræðislegu vinnubrögðum gerum það vegna þess að við berum ekki hag fyrirtækja eða landsbyggðarinnar fyrir brjósti. Því fer fjarri, enda hafa hér verið lagðar fram tillögur, mun betri, lýðræðislegri og öflugri tillögur, um hvernig leysa megi þessi mál. En við vitum það þá. (Forseti hringir.) Við keyrum það þá í gegn sem meiri hluti nefndar þegar við komum því við vegna þess að það er nýi hátturinn.