148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

frumvarp um veiðigjöld.

[14:17]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Þetta er forgangsmál í felulitum. Það einkennist af því að allir eru að skýla sér á bak við einhvern. Allir eru einhvern veginn að þykjast vera einhverjir aðrir en þeir eru. Stórútgerðin í landinu, auðvaldið, er að skýla sér á bak við litlar og meðalstórar útgerðir sem svo sannarlega þurfa sumar á stuðningi að halda. Það er enginn hér sem efast um það.

Ríkisstjórnin er líka að skýla sér með sitt forgangsmál í felulitum. Hún er að skýla sér á bak við atvinnuveganefnd. En telji ríkisstjórnin að hún sé algjörlega óflekkuð af þessu máli þá er það misskilningur. Ríkisstjórnin hefur þetta mál á sinni könnu og þetta mál mun fylgja henni alla hennar daga.