148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

frumvarp um veiðigjöld.

[14:20]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Forseti. Það er greinilega lítill áhugi hjá hæstv. forseta að leita sátta í þinginu og raunar verður þetta mál ekki skilið öðruvísi en svo að einbeittur brotavilji sé á ferð. Málið er sett fram með þessum hætti til að valda uppnámi í þinginu, kannski til að breiða yfir þá staðreynd að ríkisstjórnin hefur afskaplega fá mál fram að leggja. Við getum þá alla vega varið umræðunni í eitthvað.

Það er áhugavert að sjá að menn skýli sér á bak við það að staða útflutningsgreina sé slök. Við skulum þá ræða hana, ræða um gengi krónunnar, ræða um raunverulegar aðgerðir, ráðast að rót vandans, hvað við getum gert til að styðja við allar útflutningsatvinnugreinar landsins, skapa þeim meiri stöðugleika. Það var nefnilega fullkominn fyrirsjáanleiki í því veiðigjaldakerfi sem er við lýði. Það var algjörlega vitað að það kæmi að gjalddögum góðra ára þó svo að lakara ár kynni að vera á ferð eins og nú er.

Það er með ólíkindum að horfa á að hér sé (Forseti hringir.) stórpólitískt mál lagt fram í skjóli nefndar. Ríkisstjórnin hefur ekki einu sinni hugrekki til að standa að því sjálf. Það er ótrúlegt manndómsleysi í þessu máli (Forseti hringir.) og ótrúlegur yfirgangur gagnvart þinginu að ætla því í einhverri alvöru að ræða þetta mál með svo stuttan tíma sem raun ber vitni til þingloka.