148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

frumvarp um veiðigjöld.

[14:29]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (Flf):

Virðulegi forseti. Þetta er athyglisvert. Vinstri græn eru ekki einungis með í því með framsóknarflokkunum að stöðva ýmis þjóðþrifamál meiri hlutans. Nei, þeim er beinlínis sigað eins og blóðhundum í nefndunum til að stöðva frumvörp sem ætlað er að bæta kjör aldraðra og öryrkja; sigað eins og blóðhundum til að stöðva mál sem víðtæk samstaða hefur verið um þar til nú; sigað til þess að beita bolabrögðum í nefndunum. Í stað þess að vinna með þeim eru þau einnig í forystu þegar lækka skal veiðigjöld sem ég held að hafi nú ekki verið ofarlega á stefnuskrá Vinstri grænna.