148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

frumvarp um veiðigjöld.

[14:41]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Við þingmenn stjórnarandstöðunnar komum hingað upp vegna þess að við eigum ekki aðra kosti. Við komum hingað upp til þess að andæfa og við komum hingað upp til þess að finna að sviknum fyrirheitum. Ríkisstjórnin hefur svikið þau fyrirheit sín að efla Alþingi með eftirminnilegum hætti, með því að ganga hér um dagskrá eins og fíll í glervörubúð. Því hljótum við að andæfa.

Ég minni á tvær spurningar mínar til hæstv. forseta í morgun. Ég spurði um tvö mál Miðflokksins sem eru í gíslingu í nefndum, þ.e. um staðarval þjóðarsjúkrahúss og um að verðtrygging fari úr vísitölu. Ég bið hæstv. forseta um að taka nú upp samband við gíslatökufólkið og reyna að fá þessi mál leyst úr prísundinni þannig að við getum tekið þau til efnislegrar umræðu hér í þingsal. Það virðist vera einhver tregða og einhver ótti (Forseti hringir.) við þessi mál, en við þurfum að taka alvöruumræðu um þau hér.