148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

frumvarp um veiðigjöld.

[14:46]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Herra forseti. Eins og er orðið nokkuð ljóst þá ræðum við hér ákveðna forgangsröðun ríkisstjórnarinnar. Við sjáum að það á eftir að fara í síðari umr. um ríkisfjármálaáætlun í næstu viku, en þetta mál mun einmitt hafa áhrif á hana. Hefði ekki verið eðlilegra að byrja á þeim enda? Við sjáum að ríkisstjórninni liggur meira á að færa útgerðinni 3 milljarða á silfurfati en að klára ríkisfjármálaáætlunina sína. Henni liggur meira á að færa útgerðinni 3 milljarða á silfurfati en að klára almennu persónuverndarreglugerðina sem verður að klára. Henni liggur meira á að gefa útgerðinni 3 milljarða á silfurfati en að klára bann við almennri mismunun á vinnumarkaði vegna fötlunar, vegna trúarbragða, vegna uppruna eða annarra atriða. Sömu sögu má segja um almenna mismunalöggjöf sem líka á eftir að fara í gegnum þingið. Öll þessi vinna fram undan (Forseti hringir.) og til þess eigum við þrjá fullgilda þingdaga eftir. En þetta mál, 3 milljarðar handa útgerðinni, það hefur forgang.