frumvarp um veiðigjöld.
Herra forseti. Það er lýsandi að á sama tíma og mál liggja fyrir í nefndum í þágu þeirra sem standa höllum fæti er lækkun veiðigjalda á dagskrá. Í nefndum bíða mál sem snúast um að gera eldra fólki kleift að afla sér tekna án þess að til skerðinga komi og mál sem snúast um að þeir sem, vegna örorku eða elli, þurfa á sérstakri aðstoð að halda, samkvæmt lögum um félagslega aðstoð, séu ekki skertir hægri vinstri, í bak og fyrir, vegna uppbóta sem nú eru skattlagðar eins og um sé að ræða hverjar aðrar tekjur. Þessi mál sitja rígföst á meðan ríkisstjórnin er að hygla aðilum sem standa miklu betur. Áður hefur ríkisstjórnin lýst því að hún vilji lækka bankaskattinn um meira en 60% og vilji láta lækkun tekjuskatts flæða upp yfir allan tekjuskalann þannig að jafnvel 6 millj. kr. mennirnir (Forseti hringir.) njóti góðs af. Þetta er skýr stefna. (Forseti hringir.)
Þetta er náttúrlega engin framkoma við stjórnarandstöðuna. Maður hlýtur að spyrja sig (Forseti hringir.) hvað sé að marka orð þessara aðila um það hvernig hægt sé (Forseti hringir.) að koma málum í gegnum þingið.
(Forseti (SJS): Ég bið hv. þingmenn að gæta að tímamörkum.)