frumvarp um veiðigjöld.
Herra forseti. Ég kem hér upp líkt og aðrir og lýsi yfir undrun minni á þessum vinnubrögðum. Ég hlýt að spyrja hvort það sem við verðum vitni að í dag sé ein af óskrifuðu reglunum. Ég viðurkenni að mér fannst áðurnefnd fyrirspurn svolítið kjánaleg þegar ég las hana fyrst, en nú stend ég hér og segi: Það er full þörf á þessari fyrirspurn. Mér þætti vænt um að forseti Alþingis gæti upplýst okkur um hvað er eiginlega í gangi. Er þetta ein af óskrifuðu reglunum? Ég geri mér grein fyrir að forseti ákveður dagskrá þingsins. Það þýðir að forseti ákveður dagskrá þingsins fyrir allan þingheim. Ég vona að hann fari nú að svara okkur einhverju. Við erum farin að ræða frumvarpið hér inn á milli og það væri fínt ef hæstv. sjávarútvegsráðherra sæi sér fært að taka þátt í þeirri umræðu.