frumvarp um veiðigjöld.
Hæstv. forseti. Mér hefur skilist að hæstv. forsætisráðherra sé sérstakur áhugamaður um aukið traust á stjórnmálum og aukið traust í stjórnmálum. Það hefur líka flogið fyrir að ríkisstjórn hennar hafi sérstakan áhuga á því að auka veg og virðingu Alþingis. Við erum nú að upplifa það hvernig ríkisstjórnin hyggst fara að í því efni, þ.e. að auka traustið á stjórnmálunum og auka traust manna í milli í stjórnmálum og hvernig ríkisstjórnin hyggst auka veg Alþingis. Þær aðferðir eru mjög svipaðar þeim sem notaðar eru hér fyrir utan gluggann hjá okkur í næsta húsi, þar sem mikil niðurrifsstarfsemi fer fram. Ég held að ríkisstjórnin gæti í sjálfu sér lært mikið af því að gægjast hér út um gluggann og sjá hvernig menn bera sig að við niðurrif. En við eigum ekki að stunda niðurrif hér inni. Við þurfum að stunda hér uppbyggileg störf. Ég hvet því hæstv. forseta enn einu sinni (Forseti hringir.) til þess að leysa úr gíslingu þau mál sem enn eru í nefndum þrátt fyrir samkomulag um annað.