148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

frumvarp um veiðigjöld.

[15:02]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (Flf):

Virðulegi forseti. Þessi orð; samvinna, samstarf, efling Alþingis. Nú hefur komið berlega í ljós að það voru orðin tóm, þau orð sem stjórnin talaði svo fjálglega um. Þegar blóðhundunum hefur verið sigað og þeir búnir að rífa niður og í sig öll mál stjórnarandstöðunnar, sem svo vel var tekið fyrr í vetur, er ekki skrýtið þegar menn standa svo naktir frammi fyrir alþjóð að þeir forðist að vera inni í þingsal. Áðan þegar ég taldi voru fjórir stjórnarþingmenn í salnum að meðtöldum hæstv. forseta, en ég held þau séu jafnvel færri núna. (Forseti hringir.) Það er ekki skrýtið að menn forðist að hlusta á þessar umræður þegar þeir standa naktir frammi fyrir alþjóð, berir að því að lofa þessu og svíkja það nú.