148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

frumvarp um veiðigjöld.

[15:04]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Herra forseti. Þá erum við bara komin í þennan sama vorfíling og er vanalega í þinginu, nema hvað að í þessu tilfelli eru það ekki bara stjórnarfrumvörp sem koma fram seint og á að þvinga í gegn, heldur leggur líka meiri hluti í nefndum, stjórnarmeirihluti í nefndum, fram mál eins og um lækkun veiðigjalda, eins og kjararáðsfrumvarp, sem hefur að vísu góða þætti í sér eins og þann að fella niður kjararáð, en á sama tíma á að festa í sessi þá hækkun sem ráðamenn fengu og gerði allt vitlaust hér á kjördag 2016.

Þetta er það sem ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur talað fyrir. Nú hefur hún fengið stjórnarmeirihluta efnahags- og viðskiptanefndar til að leggja fram frumvarp rétt fyrir þinglok. Eitthvað af þessum málum verður kannski dregið til baka, líklega ekki veiðigjöldin, kannski kjararáð, og lagt fram af hæstv. forsætisráðherra Katrínu Jakobsdóttur sjálfri í haust. En þetta er sami gamli leikurinn. Það vita allir nákvæmlega hvernig hann lítur út. Hann lítur bara þannig út að við erum hérna og tölum. Verið er að eyða tíma. Það veit forseti Alþingis þegar hann setur þessi mál á dagskrá. (Forseti hringir.) Það vita stjórnarflokkarnir. Þeir koma seint fram með mál sem mikil andstaða er við, samið hefur verið um annað. (Forseti hringir.) Það vita þeir líka þegar þeir svíkja að afgreiða mál úr nefndum. En það er alfarið á ábyrgð þessa (Forseti hringir.) stjórnarmeirihluta.