148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

frumvarp um veiðigjöld.

[15:09]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Herra forseti. Það er hérna gömul grein frá því 1983 í Helgarpóstinum þar sem Steingrímur J. Sigfússon, nú hæstv. forseti, er nýkominn á þing og talar um það, með leyfi forseta:

„Mér finnst þingmenn vera fljótir að verða gamlir og þreyttir. Þeir eldast illa.“

Og aftur, með leyfi forseta:

„Það ætti enginn að vera lengi á þingi í einu. Menn ættu að taka sér hvíld … Það versta sem gæti komið fyrir, er að þingmennskan breytti mér í eitthvað annað en ég vil vera.“

Þetta eru skemmtileg ummæli. Sá forseti sem hér situr situr náttúrlega í skjóli meiri hlutans og starfar nákvæmlega eins og sá forseti sem situr í skjóli meiri hlutans hefur alltaf starfað, vinnur að framgangi mála meiri hlutans og hleypir ekki að málum minni hlutans að því marki sem hann hefur kannski sjálfur talað fyrir þegar hann var í minni hluta. Það er allt við sama heygarðshornið.

Eins og ég sagði í fyrri (Forseti hringir.) athugasemd minni þá þýðir þetta að hér er bara talað til að sóa tíma, en það er á ábyrgð forseta sem hefur dagskrárvaldið. Ábyrgðin er hjá stjórnarflokkunum og forseta sem situr í skjóli þeirra.