tilkynning.
Herra forseti. Það hefði verið alveg hreint til fyrirmyndar ef skipulag á dagskrá á þinginu hefði verið með þeim hætti að þingmenn hefðu getað unnið eins og fullan vinnudag á mánudaginn var þegar við komum aftur til starfa eftir kosningar til að klára öll þau mál sem bíða okkar. En nei, þá voru allir sendir heim með hraði. En í dag á að vinna fram á nótt. Ég velti fyrir mér hvort þetta sé ábyrg stjórn á dagskrá þingsins.
Hv. þm. Logi Már Einarsson mæltist til þess að hæstv. sjávarútvegsráðherra yrði hér í umræðunni fram á nótt. Hæstv. ráðherra sagði sjálfur við stofnun þessarar ríkisstjórnar að hann myndi meta hæfi sitt sérstaklega ef upp kæmi mál í hans embættistíð sem snerti Samherja. Hann var nefnilega stjórnarmaður í fimm ár hjá fyrirtækinu og hefur í tvígang þegið fjárhagslegan styrk hjá Samherja. Maður veltir fyrir sér hvort hann ætli að sitja í þingsalnum (Forseti hringir.) sem hæstv. ráðherra, sem hv. þingmaður, eða hvort einhver muni taka að sér að vera hæstv. sjávarútvegsráðherra í dag meðan við ræðum þetta tiltekna mál.