tilkynning.
Herra forseti. Þetta mál sýnir bæði vond vinnubrögð og vonda pólitík. Vinnubrögðin eru slæm enda er hér verið að henda inn pólitískri sprengju á síðustu þremur dögum þingsins. Pólitíkin er líka slæm því að nú á að forgangsraða í þágu stórútgerðarinnar, atvinnugreinar sem hefur hagnast um 350 milljarða á sjö árum. Bara arðurinn í prívat-vasa útgerðarmanna er hærri en öll veiðileyfagjöldin samanlagt. Það er ágætt að það gangi vel í útgerðinni en hvernig getur það verið forgangsmál Vinstri grænna að gefa stóru útgerðinni eftir þrjá milljarða? Fyrir þá upphæð mætti til dæmis hækka barnabætur um 30% eða hækka framlög ríkisins til hjálpartækja öryrkja um 50%. Af hverju eiga skattakóngar og stórútgerðin að fá flýtimeðferð en ekki öryrkjar, ekki aldraðir og ekki fjölskyldufólk?