148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

lengd þingfundar.

[15:45]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Hér er verið að greiða fyrir máli sem færa mun ríkum fyrirtækjum ótrúlega mikla peninga; lækkun veiðigjalda. Sumir hafa sagt í dag að þetta sé pólitísk sprengja. Ég ætla að ganga lengra og segja: Þetta er pólitísk atómsprengja, sem er kannski um það bil það eina sem Vinstri græn hafa ekki enn þá gefið eftir á málefnaskrá sinni. Það er kannski við hæfi.

Við hljótum að vera skynsöm og setjast niður og reyna að leysa þetta mál þannig að þingstörfin fram undan verði okkur til sóma og aðeins framgangsríkari.