lengd þingfundar.
Hæstv. forseti. Það er fátt sem gleður þann þingmann sem hér stendur meira en að taka þátt í kvöldfundum á Alþingi. Því lengri, því betra. En þegar beðið er um lengdan fund verða menn að ganga út frá því að það sé gert á réttum forsendum. Nú er beðið um kvöldfund vegna þess að ríkisstjórnin hefur ákveðið, og forseti þingsins, að ganga á bak orða sinna. Þessi hópur hefur ákveðið að leysa ekki úr gíslingu þingmannafrumvörp sem hafa verið í nefndum og eru tilbúin til úttektar. Ég hefði glaður tekið þátt í því í allt kvöld, fram á nótt og fram á morgun að ræða hér verðtryggingu og þátt húsnæðis í henni, ég hefði gert það með mikilli ánægju. Ég vil tala um málefni sem skipta fjölskyldur í landinu miklu máli. En ég get ekki tekið þátt í því að lengja þingfund út af því einu að menn skella hér inn einhverju máli á síðustu stundu, óforvarandis í óþökk þingsins og þvert á gefin loforð.