lengd þingfundar.
Forseti. Hér stöndum við og teygjum lopann. Maður hefði haldið að með risavaxið mál eins og persónuverndarlöggjöfina myndum við reyna að búa svo um hnútana að sæmileg sátt gæti ríkt um þinglok hér þannig að nauðsynlegur tími ynnist til þess að ræða jafn viðamikil og stór mál, sem mér er persónulega reyndar verulega til efs að þingið hafi fengið nægan tíma til þess að afgreiða sómasamlega, hvernig svo sem við verjum síðan tímanum hér til þingloka. Það ágæta mál er í raun og veru skammarlega seint fram komið. Við eigum eftir enn órædda fjármálaáætlun sem eðlilegt er að verja nokkrum tíma í til þess að fara yfir áherslurnar og þá vankanta sem á þeirri áætlun eru. Þetta eru gríðarlega viðamikil umfangsmikil mál. Þess vegna er mikilvægt að sátt ríki um fyrirkomulag þinghaldsins til loka þess í næstu viku.
Það er alveg ljóst að meiri hlutinn hefur engan áhuga á slíkri sátt. Forseti hefur engan áhuga á slíkri sátt.